13.890 kr.

SKU: 07235 Flokkur:

Alien Blue Plakat bardagafiskurinn (Betta splendens 'Plakat Alien Blue') er ofsafallegt og nýlegt afbrigði af labýrintufiski. Þekkist á ýktstórum eyruggum sem eru oft í öðrum lit en fiskurinn sjálfur. Hinn ægifagri hængur er sífellt að gera sig til við hrygnuna og býr oft til flothreiður til að hrygna í. Hann getur verið mjög aðgangsharður við hrygnuna og stundum gengið af henni dauðri. Hentar best stakur eða í pari eða með nokkrum hrygnum. Tveir hængar mega ekki vera saman, en hægt er að hafa margar hrygnur saman. Má ekki vera heldur vera með slæðufiskum eða nörturum þ.e. fiskum sem gætu bitið í ugga og sporða. Getur gengið í samfélagsbúri með rólegum fiskum. Nánari upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/siamese_fighting_fish.html.
Tegund: Alien Blue Plakat Fighting Fish L - male (hængur)
Stærð: 4-5 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni)

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg