3.190 kr.

Tígris sugubótían (Sewellia lineolata) er falleg og sérkennileg botnsuga frá Víetnam sem lifir í straumhörðum fjallalækjum. Hún er sérstök því að hún lítur út fyrir að vera suga en er hvorki pleggi né kattfiskur. Hún flokkast til sugubótía. Þetta er friðsamur og vinalegur fiskur sem þarf góð vatnsgæði og ívið kaldara vatn en almennir búrfiskar. Verður um 5-6 cm löng. Hún er fremur róleg að eðlisfari og hentar því aðeins með rólegum fiskum og botnfiskum. Vill gjarnan góðan vatnsstraum (4-5 x rúmmál búrsins á klst) og étur botntöflur sem og orma. Villtir!
Tegund: Tiger Hillstream Loach M - Wild.
Stærð: 4-5 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni)

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg