Kali Tawa Rainbowfish M (min. 5 pcs)
Kali Tawa regnboginn (Melanotaenia 'Kali Tawa') er afar skrautlegur dverg regnbogafiskur frá Papúa Nýju Gíneu. Þetta er nýfundin tegund. Hún fenjamýrarfiskur sem getur orðið býsna lagleg á fengitímanum. Hængurinn er litmeiri og með lengri ugga en hrygnan. Þetta er hópfiskur sem hrygnir auðveldlega í heimabúrum og dafnar best með gróðri. Fallegt gróðurbúr með 20 regnbogafiskum er ægifögur sjón. Þessum lyndir vel við aðra rólega fiska og er auðveldur byrjunarfiskur. Hængurinn verður 7 cm en hrygnan minni. Kemur úr mjög alkalísku vatni pH 9-9,5. Þetta er hoppari þ.a. búrið þarf að vera vel lokað.
Tegund: Kali Tawa Rainbowfish L
Stærð: 4-5 cm
Lágmarkspöntun: 5 stk
Einingarverð: 7.710 kr
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni)
Aðrar upplýsingar
| Þyngd | 0.00 kg |
|---|
















