Sailfin Pangasius S/M (min. 10 pcs)

4.050 kr.

SKU: 441032 Flokkur:

Háuggahákarlinn (Pangasius sanitwongsei) er friðsamur en afar stór skrautfiskur í stærstu fiskabúrum. Honum lyndir ágætlega við aðra rólega fiska en gleypir allt sem upp í hann kemst. Þetta verður mjög stórvaxinn kattfiskur sem er á stöðugri hreyfingu. Hann er hreisturslaus og viðkvæmur fyrir lyfjum aðra en saltmeðferð. Mega vera  nokkrir saman. Þessi sérstæði fiskur getur orðið meira en 250 cm langur og verður því að hafa mjög stórt búr. Kemur úr Mekong-fljóti í Víetnam og Kambódeu.
Tegund: Sailfin Pangasius/Chao Phraya Giant Catfish/Paroon Shark S/M
Stærð: 5-7 cm
Lágmarkspöntun: 10 stk
Einingarverð: 4.050 kr
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni)

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg