Jandaya Conure (Kíki) – SELDUR!

85.000 kr.

Jandaya páfinn (Aratinga jandaya) nýtur mikilla vinsælda, enda litfagur og bráðgreindur miðfugl. Hann hefur þokkalega talgetu og mjög auðvelt er að kenna honum kúnstir. Þetta er húsbóndahollur fugl sem hefur mikla leikþörf og þarf mikið kel. Nokkuð hljóður en getur gefið frá sér hávær köll ef honum leiðist. Þarf nóg til að dunda sig við ss. leikföng og nagdót. Rykar litið og þarf góða næringu þ.e. gott úrval fræja, eggjafóður og auðvitað grænmeti og ávexti. Pantanir í síma 699 3344. Nánari upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/jandaya_conure.html

Hann Kíki er 4ra ára gamall handmataður karlfugl (þó ekki kyngreindur) í leit að góðu heimili. Hann er fæddur í F&F og er mesta kelirófa en getur látið heyrast í sér til að fá athygli. Skrækina er hægt að hafa hemil á með réttu uppeldi - og maður verður nú að fá að láta aðeins heyrast í sér! Hann hefur verið á tveim heimilum frá upphafi en þarf að fara vegna breyttra fjölskylduaðstæðna. Honum fylgir ágætt smærra búr með töluvert af dóti.
Stærð: 30 cm.
Lífaldur: 30-40 ár.
Framboð: handmataður 2ja ára karlfugl.
Verð: 85.000 kr með búri. - SELDUR!

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg