Betta Super Delta ‘Dumbo Ear’ – Male L

6.690 kr.

SKU: 05985 Flokkur:

Dúmbó ofurdelta bardagafiskurinn (Betta sp. 'Super Delta Dumbo Ear') er fallegur og nýlegt afbrigði af labýrintufiski. Þekkist á ýktstórum eyruggum sem eru oft í öðrum lit en fiskurinn sjálfur. Hinn ægifagri hængur er sífellt að gera sig til við hrygnuna og býr oft til flothreiður til að hrygna í. Hann getur verið mjög aðgangsharður við hrygnuna og stundum gengið af henni dauðri. Hentar best stakur eða í pari eða með nokkrum hrygnum. Tveir hængar mega ekki vera saman, en hægt er að hafa margar hrygnur saman. Má ekki vera heldur vera með slæðufiskum eða nörturum þ.e. fiskum sem gætu bitið í ugga og sporða. Getur gengið í samfélagsbúri með rólegum fiskum. Nánari upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/siamese_fighting_fish.html
Tegund: Dumbo/Elephant Ear Fighting Fish L - Male
Stærð: 4-5 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni)

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg