21.490 kr.

SKU: ANATD1112M Flokkur:

Asíukartan (Bufo gargarizans) er stór og voldug karta frá Japan. Hún er nokkuð algeng þar og finnst víð ár og fjót. Auðvelt að hugsa um hana sem gæludýr. Hún vill vera í röku umhverfi (60-70% raki) með aðgang að hreinu vatni. Botnlag má vera mold, gróf en slétt möl, börkur eða mosi. Vill hafa felustaði ss. steina eða viðarbúta. Getur orðið nokkuð langlíf (20 ára). Nærast á skordýrum ss. mjölormum, möðkum, smærri froskum, músarungum og skordýrum. Kvendýrið er nokkuð stærra en karldýrið. Verður um 17 cm langt en karldýrin um 8 cm. Geta orðið mjög skemmtileg gæludýr en hafa eiturkirtla sem þarf að gæta sín á. Þau læra að þekkja eiganda sinn og setja sig þá í matarstellingar. Matarlystin er mjög mikil! Þarf ekki UV-ljós - hefðbundin flúrljós nægja og eins stofuhiti.

Tegund: Japanese Toad M
Stærð: 8-10 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 8 vikur (eftir framboði hverju sinni)

File:Bufo japonicus DSCN9882.jpg - Wikimedia Commons

Umönnunarleiðbeiningar

 

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg