Caudopunk Cichlid M
Kádópúnktinn (Neolamprologus caudopunctatus) er falleg smásiklíða í sérfiskabúri. Honum lyndir nokkuð vel við aðra rólega fiska nema á hrygningartímanum þegar hann vill helga sér svæði og verja. Hann dvelur gjarnan í grjóti og stundum í kuðungum og hrygnir þar. Hann þarf búr með háu sýrustigi og töluverða vatnshörku. Hængurinn verður um 7 cm langur en hrygnan minni. Hitastig 26°C. Þekkist á perlumynstri í sporðinum og rauðgylltum bakugga. Skemmtilegur og sýnilegur smáfiskur fyrir búr frá 60 lítrum.
Tegund: Caudopunk Cichlid S/M
Stærð: 3-4 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni)
Aðrar upplýsingar
Þyngd | 0.00 kg |
---|