Chiloscyllium plagiosum L

345.090 kr.

SKU: SC-PLA-033093 Flokkur:

Hvítdoppótti bambusháfurinn (Chiloscyllium plagiosum) er flottur hákarl. Hann er svartur með hvítum flekkuböndum sem ungviði en ljósleiturmeð búnum þverböndum og hvítum doppum þegar hann fullorðnast. Þeir skríða bókstaflega eftir botninum í ætisleit og nota til þess kröftugu kviðuggana. Þetta er viðkvæmur fiskur sem stækkar hratt en hentar ekki byrjendum. Hann er kjötæta og étur alls kyns kjötmeti og þarf sendinn botn til að róta í og fela sig. Þarf mjög stórt búr með gott sundpláss og straummikið, og mjög góð vatnsskilyrði með próteinfleyti. Hann þolir ekkert kopar. Nóg að fóðra x2 í viku td. með rækjum eða ýsubitum. Verður um 80 cm langur.
Stærð: large (stór)
Afgreiðslutími: 2-4 vikur (eftir framboði hverju sinni)

Chiloscyllium plagiosum

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg