Anthia sexguttata L

5.990 kr.

SKU: ANIIB3401 Flokkar: ,

Dómínó tígrisbjallan (Anthia sexguttata) er forvitnilegt gæludýr sem finnst frá Egyptalandi austur til Írans. Hún er kolsvört með 6 hvítum doppum á baki og líkist þannig dómínókubbi. Hún er hraðskreið og veiðir sér gjarnan til matar að næturlagi. Hún hefur nokkuð sterkar bitklær og getur sprautað frá sér maurasýru sé henni ógnað. Það svíður undan sýrunni og lyktin er vond. Hún er ófleyg. Best er að hafa þessa bjöllu í loftræstu en lokuðu búr með botnlagi úr barkarspæni eða sandi. Einnig má nota gróðurmold, dagblaðaspænir eða spaghnum mosa. Best er að hafa nokkra felustaði. Bjallan lifir á smáskordýrum, mjölormum, möðkum eða öðrum bjöllum. Gott er að hafa grunna vatnsskál hjá henni og aðra skál undir fóður. Búrið þarf ekki að vera stórt. Getur ekki klifrað upp gler. Verður um 5-6 cm löng.

Tegund: Domino Tiger Beetle L
Stærð: 3 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 8 vikur (eftir framboði hverju sinni)

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg