Dwarf Kuhli Loach S/M – Wild (min. 60 pcs)
Gyllta kúlíbótían (Pangio cuneovirgata) er falleg smávaxin sniglaæta frá Tælandi. Hún verður aðeins um 4-5 cm löng. Mjög falleg og fremur róleg að eðlisfari. Hún er felugjörn og hentar því aðeins með rólegum fiskum og botnfiskum. Hængurinn er spengilegri en hrygnan og bæði eru með beinnibbur undir augun sem þau geta sprett út til varnar. Þess vegna er ekki hyggilegt að halda á þeim með berum höndum! Þarf góða felustaði til að troða sér í, einkum sendinn botn. Aðalfæðan eru sniglar og fóðurtöflur og hvers kyns matarleifar. Þola illa lyfjagjöf af því að þær eru hreisturslausar og best að nota saltmeðferðina ef sjúkdómar koma upp. Þeir eiga að vera ekki færri en þrír saman í búri og geta stundum fjölgað sér. Fela sig iðulega í botnlaginu og er nær ómögulegt að veiða þá aftur. Villtir!
Tegund: Dwarf Coolie Loach S/M - Wild
Stærð: 2-3 cm
Lágmarkspöntun: 60 stk
Einingarverð: 370 kr
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni)
Aðrar upplýsingar
Þyngd | 0.00 kg |
---|