Extatosoma tiaratum M

4.290 kr.

SKU: ANISI1601M Flokkur:

Brodd förustafurinn (Extatosoma tiaratum) er stórmerkilegt gæludýr sem finnst í Ástralíu. Þetta er með stærri förustöfum og vel brynvarinn. Best er að hafa hann í loftræstu en lokuðu búri með moldarbotnlagi og mosa. Þessi tegund heldur sér meira við botninn sökum stærðar og þyngdar en getur klifrað vel. Karldýrið er minna og grennra en kvendýrið og verður um 11 cm á lengd. Kvendýrið er feitlagnara og getur náð 20 cm á lengd. Þau eru bæði vel broddótt (kvendýrið þó mun meira en karlinn með brodda á höfði) og sperra sig eins og sporðdreki til varnar. Gýtur í moldi og eggin eru 4 mánuði að klekjast út. Getur verið tvíkynja ef ekkert karldýr er til staðar. Eggin eru þá lengur að klekjast út (9 mánuði). Lifa eingöngu á laufblöðum ss. af rósaviði, klungrum (hindberjarunnum og brómberjarunum). Má gefa afhýdd epli við og við. Þarf nokkuð góðan raka og alltaf nóg hreint drykkjarvatn. Geta slegist innbyrðis. Venjast fljótt að haldið sé á þeim.

Tegund: Giant Prickly Stick Insect/Australian Walking Stick M
Stærð: 3-5 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 8 vikur (eftir framboði hverju sinni)

Umönnunarleiðbeiningar.

 

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg