Featherfin Synodontis S/M (min. 12 pcs)

2.890 kr.

SKU: 178002 Flokkur:

Háuggagraninn (Synodontis eupterus) er fallegur og tignarlegur hrygggrani frá vatnasvæði Hvít-Nílar í Súdan í N-Afríku. Þetta er sýnilegur og dugmikill þrifill. Hann er almennt rólegur og þolinn gagnvart öðrum að sama kyni. Bestur samt með rólegum fiskum þar sem hann fær að vera í friði. Hann er snar í snúningum og getur gleypt smærri fiska og seiði. Nærist á möðkum og kjötmeti og þarf sendinn botn til að róta í. Verður um 23 cm langur og getur náð 10 ára aldri.
Tegund: Featherfin Synodontis S/M
Stærð: 4-6 cm
Lágmarkspöntun: 12 stk
Einingarverð: 2.890 kr
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni)

 

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg