9.390 kr.

SKU: ANATD1107L Flokkur:

Grænkartan (Anaxyrus (Bufo) debilis) er fremur lítil og sérlega myndarleg karta frá SV-hluta Bandaríkjanna. Auðvelt að hugsa um hana sem gæludýr. Hún vill vera í aðeins röku umhverfi með aðgang að hreinu vatni. Hún lifir í eyðimerkum og þolir þurrk nokkuð vel. Botnlag má vera mold, gróf en slétt möl, börkur eða mosi. Vill hafa felustaði ss. steina eða viðarbúta. Nærast á skordýrum ss. mjölormum, möðkum og lirfum. Taka einnig vandað þurrfóður ss. JurassiDiet Frog & Newt og fóðurtöflur. Kvendýrið er allt að því tvöfallt stærra en karldýrið. Karldýrið gefur frá djúp búkhljóð. Þekkist á fallega grænu mynstrinu. Verður um 5 cm á lengd. Getur ná góðum aldri.
Tegund: Green Toad L
Stærð: 3 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 8 vikur (eftir framboði hverju sinni)

Anaxyrus debilisMynd: JD Willson, 2006

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg