Idolomantis diabolica M
Djöflabeiðan (Idolomantis diabolica) er gríðarlega flott blómabeiða sem finnst í A-Afríku. Hún er rjómalituð með ljósgrænum rákum, og stundum bleikleit. Karldýrið og kvendýrið verða bæði um 10 cm. Kvendýrið er feitlagnara en fálmaranir á karldýrinu líkjast fjöðrum. Það er erfitt að hugsa um þessa tegund og þarf mikla natni við. Best er að hafa hana í loftræstu en lokuðu búri með moldarbotnlagi og mosa og plöntum. Kjörhiti er 32-40°C. Raki 30-40%. Búa á þurrum svæðum með lægra rakastígi. Best er að hýsa beiðurnar stakar þar eð þær geta lagst hver á aðra og étið minni dýr td. karldýrin og ungviði. Það er þó hægt að hafa þær fleiri saman. Nærast á eingöngu á flugum. Búrið þarf ekki að vera stórt.
Tegund: Devil's Flower Mantis M
Stærð: 3-4 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 8 vikur (eftir framboði hverju sinni)
Aðrar upplýsingar
Þyngd | 0.00 kg |
---|