Jandaya Conure (Prinsessa) – SELD!
Jandaya páfinn (Aratinga jandaya) nýtur mikilla vinsælda, enda litfagur og bráðgreindur miðfugl. Hann hefur þokkalega talgetu og mjög auðvelt er að kenna honum kúnstir. Þetta er húsbóndahollur fugl sem hefur mikla leikþörf og þarf mikið kel. Nokkuð hljóður en getur gefið frá sér hávær köll ef honum leiðist. Þarf nóg til að dunda sig við ss. leikföng og nagdót. Rykar litið og þarf góða næringu þ.e. gott úrval fræja, eggjafóður og auðvitað grænmeti og ávexti. Pantanir í síma 699 3344. Nánari upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/jandaya_conure.html
Hún Prinsessa er 9 ára gamall handmataður kvenfugl í leit að góðu heimili. Hún er fædd í F&F og er mesta kelirófa en getur látið heyrast í sér til að fá athygli. Skrækina er hægt að hafa hemil á með réttu uppeldi - og maður verður nú að fá að láta aðeins heyrast í sér! Hún þarf að finna nýtt heimili vegna veikinda eiganda.
Stærð: 30 cm.
Lífaldur: 30-40 ár.
Framboð: handmataður 9 ára kvenfugl.
Verð: 80.000 kr.- SELD!
Aðrar upplýsingar
Þyngd | 0.00 kg |
---|