Myliobatis californica M

550.990 kr.

SKU: RM-CAL-034012 Flokkur:

Leðurblökuskatan (Myliobatis californica) er afar forvitnileg og sérstæð skata sem finnst í A-Kyrrahafi. Hún heldur sér á sendnum botnum í ætisleit. Halinn er tvöfalt lengri en búkurinn og er með eiturbrodd. Augun eru stór og útstæð. Þetta er viðkvæmur fiskur sem stækkar hratt en hentar ekki byrjendum. Hann er kjötæta og étur alls kyns kjötmeti og þarf sendinn botn til að róta í og fela sig. Þarf mjög stórt búr með gott sundpláss og straummikið, og mjög góð vatnsskilyrði með próteinfleyti. Hann þolir ekkert kopar. Verður allt að 180 cm langur.
Stærð: medium (meðalstór)
Afgreiðslutími: 2-4 vikur (eftir framboði hverju sinni)

Myliobatis californica

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg