Omomantis zebrata M
Sebrabeiðan (Omomantis zebrata) er gríðarlega flott blómabeiða sem finnst í SA-Afríku. Hún er grænleit með rákamynstri. Karldýrið og kvendýrið verða bæði um 6 cm. Kvendýrið er feitlagnara. Best er að hafa hana í loftræstu en lokuðu búri með moldarbotnlagi og mosa og plöntum. Kjörhiti er 25-28°C. Raki 50-60%. Best er að hýsa beiðurnar stakar þar eð þær geta lagst hver á aðra og étið minni dýr td. karldýrin og ungviði. Það er þó hægt að hafa þær fleiri saman. Nærast á flugum, fiðrildum og ýmsum skordýrum. Geta étið krybbur en bara um stund. Búrið þarf ekki að vera stórt.
Tegund: Zebra Mantis M
Stærð: 3-4 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 8 vikur (eftir framboði hverju sinni)
Aðrar upplýsingar
Þyngd | 0.00 kg |
---|