Pachnoda marginata peregrina

2.090 kr.

SKU: ANIIB2301 Flokkur:

Kongó rósaýflan (Pachnoda marginata peregrina) er falleg bjöllutegund frá Kongó og nágrenni í Afríku. Bæði kynin eru vængjuð og geta flogið stuttar vegalengdir og snúið sér í allar áttir í flugi. Klifra mikið og nærast á ávöxtum, blómablöðum og trjásafa. Best er að hafa bjöllurnar í loftræstu en lokuðu búri með blöndu af beykispæni (20%) og húmus (80%). Gott að hafa grunna vatnsskál með eldhúsbréfi í undir hreint vatn. Botnlagið þarf að vera djúpt því að kvendýrið grefur sig oft niður og tiltölulega auðvelt er að koma upp ungviði en vaxtarferlið tekur aðeins 5 mánuði. Bjallan verður um 2,5 cm á lengd. Hitasvið er 22-28°C. Bjöllulirfur verða allt að 5 cm langar og 1 cm í þvermáli, og henta vel sem fæða fyrir froska og fleiri dýr.

Tegund: Congo Rose Chafer
Stærð: 2 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 8 vikur (eftir framboði hverju sinni)

Pachnoda marginata peregrina - Sun Beetle | Beetle, Insects, Photo reference

Umönnunarleiðbeiningar.

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg