Saltwater Flakes with Garlic 45g – UPPSELT!

1.590 kr.

Ekki til á lager

SKU: 51045 Flokkur:

Byltingakennt fóður frá New Life Spectrum. Einfaldlega vandaðasta og besta fiskafóðrið í heiminum! Aðeins er notast við hágæðahráefni á borð við krill-átu og síld, frekar en hefðbundið fiskimjöl eins og flestir aðrir framleiðendur, til að tryggja hámarksnæringu og hreysti. Hvort sem um er að ræða samfélagsbúr eða sérhæft siklíðubúr uppfyllir New Life Spectrum þarfir allra fiska - kjötæta, grænmetisæta og alæta. Fjórir náttúrulegir litaukar í fóðrinu, m.a. spirúlína þörungur, tryggja að fiskurinn skarti fegurstu liti og viðbættar fiskiolíur og hvítlaukur tryggja bestu heilsu og sjúkdómsviðnám. Engin hormón eru notuð í fóðrinu. Reyndu og þú sérð mun innan tíu daga!!

  Tangar fyrir og eftir New Life Spectrum.

Saltwater Flakes with Garlic
er fyrir minni sjávarbúrsfiska. (Stærri búrfiskar geta étið fóðurkögglana.) Það hefur hátt próteinhlutfall að viðbættum hvítlauk og allt fyrir heilbrigða og sterka smáfiska. Þótt margir fiskar séu grænmetis- og þörungaætur þá éta þeir einnig mikið af vatnalífverum til að fá nauðsynleg prótein. Búrlíf tryggir yfirleitt ekki nægt framboð af þörungum til að mæta þessari þörf en samsetning New Life Spectrum Saltwater Flakes with Garlic gerir það hins vegar og svo um muna

Stærð og lögun: flotflögur.
Magn: 45 g.

Innihald: fiskimjöl, Íshafsrækja (krill), kræklingur, hveiti, hveitiglúten, þörungamjöl, soja, fiskiolía, amínósýrur, betakarótín, spirulína, hvítlaukur, A-vítamín, D3-vítamín, B12-vítamín, ribóflavín, níacín, fólínsýra, kalsíum pantóþenat, pýrídoxín hýdróklóríð, þíamín, bíótín, E-vítamín, C-vítamín, kólín klóríð, kóbalt súlfat, koparsúlfat, járnsúlfat, mangansúlfat, rotvarnarefni. 
Samsetning (1 kg): Hráprótín 49%, hráfita 8%, hrátrefjar 5%, aska 9%, raki 10%, A-vítamín 8000 IU, D-vítamín 450 IU, E-vítamín 200 IU.

 

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg