Scarlet-fronted Conure (Húgólína) – SELD!

30.000 kr.

Rauðbrýndi haukpáfinn (Aratinga wagleri frontata) nýtur vinsælda fyrir góða lund og litfegurð. Hann er næst stærstur í sinni ætt og greindur mjög. Hann hefur þokkalega talgetu og mjög auðvelt er að kenna honum kúnstir. Þetta er húsbóndahollur fugl sem hefur mikla leikþörf og þarf mikið kel. Nokkuð hljóður en getur gefið frá sér hávær köll ef honum leiðist. Þarf nóg til að dunda sig við ss. leikföng og nagdót. Rykar lítið og þarf góða næringu þ.e. gott úrval fræja, eggjafóður og auðvitað grænmeti og ávexti, ásamt vítamínum. Nánari upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/scarlet-fronted_conure.html

Hún Húgólína er 6 ára gamall, taminn rauðbrýndur haukpáfi flutt inn frá Bretlandi. Hún er almennt gæf og finnst skemmtilegast að vera í búri eða á flugi um íbúðina. Hefur annars gaman af að dúllast og láta klóra sér þ.e. af þeim sem hún treystir, en getur orðið auðveldlega afbrýðissöm út allt og alla mislíki henni eitthvað. Húgólína muldrar mikið allan daginn og talar e-ð líka. Það getur heyrst töluvert í henni fái hún ekki athygli, eins og títt er með þessa tegund. Kann margar skipanir. Er til sölu vegna breyttra aðstæðna og aðstöðuleysis.
Lífaldur: 30-40 ár.
Verð: 30.000 kr - SELD!

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg