Senegal Bichir – Albino S/M (min. 7 pcs)
Albínó senegal bikírinn (Polypterus senegalus 'Albino') er állaga fiskur frá V-Afríku. Þetta er bæði einfari og hópfiskur sem liðast um búrbotninn í ætisleit. Hann henta eingöngu með stærri fiskum en þó ekki grimmum. Hann er almennt rólegur en stærðar síns vegna getur hann ekki verið með fiskum sem hann getur gleypt - og hann er býsna munnstór. Hann er afar snar í snúningum og eigandinn þarf því að gæta þess að hafa búrið vel lokað. Nærist á möðkum, kjötmeti og smáfiskum. Verður allt að 42 cm langur. Ræktaðir!
Tegund: Albino Cuvier's/Senegal Bichir S/M - Bred
Stærð: 8-10 cm
Lágmarkspöntun: 7 stk
Einingarverð: 4.390 kr
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni)
Aðrar upplýsingar
| Þyngd | 0.00 kg |
|---|





