9.390 kr.

SKU: 60047 Flokkur:

Síberíustyrjan (Acipenser baerii) er forneskjulegt og afar sérstætt dýr. Hún er brynvarinn með búkgöddum og fjóra munnþreifara. Hún getur orðið 63 ára gömul, 200 cm löng og vegið 210 kg. Hún er aðallega veidd til kavíarframleiðslu en áður einnig til matar. Finnst víða í Síberíu í Rússlandi. Oft höfð í útitjörnum með stærri gullfiskum eða koi þar sem hún nærist m.a. á botnlífverum. Tímgast eins og laxinn. Hluti ævinnar fer í uppvexti í ám. Síðan heldur styrjan til sjávar og leitar upp í ár til að hrygna á nokkurra ára fresti.
Tegund: Siberian Sturgeon 10-12"
Stærð: 25-30 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni)

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg