Solomon Island Eclectus (Klea) – SELD!

250.000 kr.

Solomoneyja eclectusinn (Eclectus solomonensis) er
vinsæll
og sérlega glæsilegur stórfugl. Hann er bráðgreindur og yfirvegaður,
félagslyndur og friðsæll. Karlfuglinn er fagurgrænn með ljósan gogg og
rautt undirvængku. Kvenfuglinn er öllu litfegurri. Hún er blóðrauð með
fjólubláan kvið og svartan gogg. Kynin er reyndar svo ólík að löngum
var haldið að um tvær aðskildar tegundir væri að ræða. Eclectusinn
hefur mjög góða talgetu og er mjög hæfileikaríkur. Hann hefur þann kost
að þetta er ekki rykfugl og minna fjaðurendarnir reyndar á mannshár.
Það er mjög auðvelt að
kenna honum kúnstir. Þetta er
húsbóndahollur fugl sem hefur töluverða leikþörf en mikla nagþörf. Hann
er með mýkri gogg en aðrir páfagaukar af sömur stærð og getur því ekki
brotið harðar hnetur. Hann þarf góða næringu
þ.e. gott úrval fræja, eggjafóður og auðvitað grænmeti og ávexti í
miklu magni - alveg til jafns á við fræ. Þeim þykir mannamatur góður en
það á EKKI að gefa þeim pellets.
Pantanir í síma 699 3344. Nánari
upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/australasian_parrots__astralas.html

Hún Klea er
5 ára gömul og fæddist í sóttkví í Bandaríkjunum en hefur verið hérlendis í um 3 ár. Hún var handalin. Klea er sérlega blíð og góð við alla. Hún hefur nartað aðeins í stél- og vængfjaðrir en vonandi hættir hún því þegar hún fær meiri athygli. Eigandinn er fluttur aftur til Bandaríkjanna og því er fuglinn falur.
Tegund: Solomon Island Eclectus
Stærð: 37 cm.

Lífaldur: 40 ár.

Framboð: 5 ára gamall handalinn kvenfugl - SELD!

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg