Pelmatojulus ligulatus L
Ghana þúsundfætlan (Pelmatojulus ligulatus) er forvitnilegt gæludýr. Hún er gulbrúnleit með ljósari þverröndum. Hún verður um 16 cm löng og kemur frá V-Afríku. Þetta er nokkur stór og fjörug þúsundfætla. Best er að hafa hana í loftræstu en lokuðu búri með moldarbotnlagi og mosa. Hún lifir á rotnandi laufblöðum, ávöxtum, grænmeti og fiskafóðri. Moldin þarf að vera rök og gott er að hafa grunna vatnsskál hjá henni. Búrið þarf ekki að vera stórt. Getur ekki klifrað upp gler. Þessari finnst gott að grafa sig ofan í botnlaginu. Allar þúsundfætlur seyta frá sér vökva sér til varnar. Vökvinn er eitraður en flestum skaðlaus. Þess vegna ætti að þvo hendur eftir að hafa meðhöndlað dýrin, áður en farið er með fingur í augu eða munn! Getur lifað í 7-10 ár. Þarf 70-80% loftraka og rakt botnlag en ekki blautt.
Tegund: Amber/Ghana Millipede L
Stærð: 8-10 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 8 vikur (eftir framboði hverju sinni)
Aðrar upplýsingar
Þyngd | 0.00 kg |
---|