Solomon Island Eclectus (Leó) – SELDUR
Solomoneyja eclectusinn (Eclectus solomonensis) er
vinsæll og sérlega glæsilegur stórfugl. Hann er bráðgreindur og yfirvegaður, félagslyndur og friðsæll. Karlfuglinn er fagurgrænn með ljósan gogg og rautt undirvængku. Kvenfuglinn er öllu litfegurri. Hún er blóðrauð með fjólubláan kvið og svartan gogg. Kynin er reyndar svo ólík að löngum var haldið að um tvær aðskildar tegundir væri að ræða. Eclectusinn hefur mjög góða talgetu og er mjög hæfileikaríkur. Hann hefur þann kost að þetta er ekki rykfugl og minna fjaðurendarnir reyndar á mannshár. Það er mjög auðvelt að
kenna honum kúnstir. Þetta er
húsbóndahollur fugl sem hefur töluverða leikþörf en mikla nagþörf. Hann er með mýkri gogg en aðrir páfagaukar af sömur stærð og getur því ekki brotið harðar hnetur. Hann þarf góða næringu
þ.e. gott úrval fræja, eggjafóður og auðvitað grænmeti og ávexti í miklu magni - alveg til jafns á við fræ. Þeim þykir mannamatur góður en það á EKKI að gefa þeim pellets.
Pantanir í síma 699 3344. Nánari
upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/australasian_parrots__astralas.html
Hann Leó er
aðeins 4ra mánaða gamall og fæddist hér á Íslandi. Hann var handalinn.
Tegund: Solomon Island Eclectus
Stærð: 37 cm.
Lífaldur: 40 ár.
Framboð: 4ra mánaða gamall handalinn karlfugl - SELDUR!
Aðrar upplýsingar
Þyngd | 0.00 kg |
---|