Paraguay Eartheater M (min. 5 pcs)
Balzaninn (Gymnogeophagus balzanii) er falleg siklíða í blönduðu búri. Henni lyndir sæmilega vel við aðra af sömu tegund, nema á hrygningartímanum þegar hún vill helga sér svæði og verja. Þetta er gullfalleg siklíða þegar hún er orðin kynþroska (um 18-24 mánaða) og hængurinn fær langa ugga. Þessi fiskur rótar mjög eftir æti í botnlaginu. Hann verður um 20 cm langur og er í hópi grimmlyndari moldsiklíða. Þekkist á ennishnúðnum og er munnklekjari. Ræktaðir!
Tegund: Balzani/Paraguay Eartheater / Argentine Humphead M - Bred
Stærð: 5-7 cm
Lágmarkspöntun: 5 stk
Einingarverð: 5.490 kr
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni)
Aðrar upplýsingar
| Þyngd | 0.00 kg |
|---|












