38.270 kr.

Regnbogamoldarinn (Gymnogeophagus cf. lipokarenos) er falleg siklíða í blönduðu búri. Henni lyndir sæmilega vel við aðra af sömu tegund, nema á hrygningartímanum þegar hún vill helga sér svæði og verja. Þetta er gullfalleg siklíða þegar hún er orðin kynþroska (um 18-24 mánaða) og hængurinn fær lengri ugga. Þessi fiskur rótar eftir æti í botnlaginu. Hann verður aðeins um 10-12 cm langur og kemur frá Rio Uruguary vatnasvæðinu í Úrúgvæ. Fær ennishnúð og er munnklekjari (taka seiðin upp í sig þegar eggjn hafa klakist út). Þurfa kaldara vatn hluta árs (niður í 14-16°C). Viðkvæmir fyrir nítrati. Best að hafa einn hæng á móti þrem hrygnum.
Tegund: Rainbow Humphead Eartheater M/L
Stærð: 6-8 cm
Lágmarkspöntun: 6 stk
Einingarverð: 38.270 kr
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni)

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg