Green Tefé Discus – Wild M (min. 2 pcs)

40.490 kr.

SKU: 733063 Flokkur:

Green Tefé diskusinn (Symphysodon tarzoo 'Green Tefé') er villt græn diskusartegund frá Tefé-vatni á Amasónsvæði Brasilíu. Diskusinn hefur verið kallaður konungur ferskvatnsfiskanna, og ber það nafn með rentu. Þótt það sé nokkuð auðvelt að ala önn fyrir þessum fiskum fyrirgefa þeir ekki mistök í vatnsgæðum. Óreyndir ættu því ekki að fjárfesta í þeim. Best er að hafa þá eina sér en þeir geta verið með öðrum rólegum fiskum.  Verða 15-20 cm langir, en 13-16 cm í náttúrunni. Sýrustig, pH 4,6-5,9. Hitastig 27-30°C, Villtir!
Afbrigði: Green Tefé Discus M - Wild
Stærð: 7-9 cm
Lágmarkspöntun: 2 stk
Einingarverð: 40.490 kr
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni)

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg