Achatina fulica ´White Jade’ M

4.790 kr.

SKU: ANISN1102M Flokkur:

Afríski risasnígillinn (Achatina fulica 'White Jade') er forvitnilegt gæludýr. Hún verður stór - allt að því 20 cm löng og 10 cm í þvermáli og allt að því 600g á þyngd. Skelin er gulbrún og rákótt en snígillinn ljósleit. Finnst víða í hitabelti Afríku. Hitastig 20-25°C og rakt umhverfi. Lifa á kálmeti en þiggja líka epli og banana. Gæta þarf þess að gefa kalk út á fæðuna. Best er að hafa hana í loftræstu en lokuðu búri með djúpu moldarbotnlagi og mosa. Moldin þarf að vera rök og gott er að hafa grunna vatnsskál hjá henni. Búrið þarf ekki að vera stórt. Getur klifrað upp gler og lokað sig af ef þeim líður illa.

Tegund: Giant African Snail 'White Jade' M
Stærð: 4-5 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 8 vikur (eftir framboði hverju sinni)

Achatina fulica rodatzi - white jade. | Snail, African snail, Giant african land snails

Umönnunarleiðbeiningar!

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg