Barlow’s Apisto XL (min. 6 pcs)
Barlowinn (Apistogramma barlowi) er falleg og sérstæð dvergsiklíða frá Rio Ampiyacu vatnasvæðinu í norðurhluta Perú. Henni lyndir nokkuð vel við aðra rólega fiska nema á hrygningartímanum þegar hún vill helga sér svæði og verja. Hún er falleg og tignarleg og dafnar best í góðu gróðurbúri. Bestir í pari eða hængur með nokkrum hrygnum. Hængurinn verður um 7 cm og hrygnan aðeins minni. Þau hafa það sérstaka háttalag að hrygnan tekur útklakin seiðin upp í munn sér og stundum hængurinn líka.
Tegund: Barlow's / Megamouth Dwarf Cichlid XL
Stærð: 5-6 cm
Lágmarkspöntun: 6 stk
Einingarverð: 7.710 kr
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni)
Aðrar upplýsingar
| Þyngd | 0.00 kg |
|---|
















