4.880 kr.

SKU: 628703 Flokkur:

Ópal borellinn (Apistogramma borelli 'Opal') er nývinsæl dvergsiklíða frá S-Ameríku. Honum lyndir nokkuð vel við aðra rólega fiska nema á hrygningartímanum þegar hann vill helga sér svæði og verja. Hann mjög fallegur og tignarlegur og dafnar best í góðu gróðurbúri, minnst 60 lítra.  Hann er bestur í pari eða hængur með nokkrum hrygnum. Hængurinn verður um 6,5 cm langur en hrygnan 5 cm. Sýrustig pH 5,8-8 og hiti 26-28°C. Ræktaðir. Nánari upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/apistogramma_borellii.html
Tegund: Opal Borelli Dwarf Cichlid M - Bred
Stærð: 2,5-3cm
Lágmarkspöntun: 18 stk
Einingarverð: 4.880 kr
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni)

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg