Doratogonus stylifer L
Gulfætta risaþúsundfætlan (Mardonius parilis aciticonus) er forvitnilegt gæludýr. Hún er satínsvört með gular lappir. Verður um 16 cm löng og er með eindæmum klifurgjörn. Kemur frá V-Afríku. Best er að hafa hana í loftræstu en lokuðu búri með moldarbotnlagi og mosa. Ekki má hafa neitt barr eða furukurl. Fætlan lifir á rotnandi laufblöðum, ávöxtum, grænmeti og fiskafóður. Moldin þarf að vera rök og gott er að hafa grunna vatnsskál hjá henni. Búrið þarf ekki að vera stórt. Getur ekki klifrað upp gler. Allar þúsundfætlur seyta frá sér vökva sér til varnar. Vökvinn er eitraður en flestum skaðlaus. Þess vegna ætti að þvo hendur eftir að hafa meðhöndlað dýrin, áður en farið er með fingur í augu eða munn! Getur lifað í 7-10 ár. Þarf 70-80% loftraka og rakt botnlag en ekki blautt.
Tegund: Yellow-legged Millipede L
Stærð: 10-12 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 8 vikur (eftir framboði hverju sinni)
Aðrar upplýsingar
Þyngd | 0.00 kg |
---|