Elenora Cockatoo (Kókó) – SELDUR
Elenora kakadúinn (Cacatua galerita elenora) er fallegur hvítur fugl með sítrónugulan kamb, eins og Kíkí í Ævintýrabókum Enidar Blyton. Þetta er fluggreindur páfagaukur með heilmikla talgetu og auðvelt er að kenna honum kúnstir. Þetta er
fugl sem heldur tryggð við "fjölskylduna" sína. Hann hefur mikla leikþörf og nagþörf. Nokkuð hljóður
en getur gefið frá sér
skræki á vissum tímum dagsins. Þarf nóg til að
dunda sig við ss. leikföng og nagdót. Og þarf mikla ást og alúð. Rykar töluvert og þarf góða næringu
þ.e. gott úrval fræja, pálmahnetur, eggjafóður og auðvitað grænmeti og ávexti. 
Hann
Kókó er 5 ára gamall handmataður karlfugl, fluttur inn frá Bretlandi. Hann er mjög líflegur og skemmtilegur fugl sem elskar að láta klóra sig
á höfði og undir vængjum. Hann er barngóður en getur verið stríðinn við fullorðna ef hann fær ekki þá athygli sem hann vill. Hann kann að tala þó nokkuð. Honum fylgir grátt Haiti búr frá
Montana Cages (sjá að ofan) og sérinnfluttur greinastandur úr hvítu harðplasti. Kókó er til sölu vegna breyttra búsetuaðstæðna eiganda. Hann er sá eini sinnar tegundar á landinu. Nánari
upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/elenora_cockatoo.html
Stærð: 44 cm.
Lífaldur: 70-100 ár.
Verð: 480.000 kr ásamt búri og standi. Tilboð skoðast og einnig skipti á amasóna eða CAG - SELDUR!
Aðrar upplýsingar
| Þyngd | 0.00 kg |
|---|





