Compressiceps Dwarf Pike M (min. 5 pcs)
Compressiceps dverggrenisiklíðan (Wallaciia compressiceps) er mjög straumlínulöguð siklíðutegund. Hængurinn verður um 10 cm langur en hrygnan minni. Ein sú minnsta í sinni ætt og fegurst. Hún er rólegri en aðrar grenisiklur en getur orðið skapstór við hrygningu. Hún er harðgerð og auðveld og er eftirsótt vegna útlits og æðis. Gengur með miðlungsstórum tetrum en ekki minni fiskum sem hún getur gleypt, enda munnstór. Á það til að róta töluvert í botnlaginu þ.a. gróður þarf að vera vel festur. Búrið þarf að vera vel lokað. Hrygnan gætir hrognanna. Hægt að hafa marga saman í búri. Finnst á vatnasvæði Tocantins í Brasilíu.
Tegund: Compressiceps / Green Dwarf Pike Cichlid M
Stærð: 5-8 cm
Lágmarkspöntun: 5 stk
Einingarverð: 7.160 kr
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni)
Aðrar upplýsingar
| Þyngd | 0.00 kg |
|---|












