2.490 kr.

SKU: 668004 Flokkur:

Lýrutafldvergsiklíðan (Dicrossus filamentosus) er snotur dvergsiklíða frá Rio Negro vatnasvæðinu í Brasilíu og Rio Orinoco vatnsvæðinu í Kólombíu og Venesúela. Henni lyndir nokkuð vel við aðra rólega fiska nema á hrygningartímanum þegar hún vill helga sér svæði og verja. Hún er falleg og tignarleg og dafnar best í góðu gróðurbúri. Hún er best í pari eða hængur með nokkrum hrygnum. Hrygnan verður um 6 cm en hængurinn allt að 9 cm. Hængurinn fær spaðalaga sporð með aldrinum. Vilja mjög súrt vatn til hrygningar.
Tegund: Lyretail Checkerboard Cichlid M
Stærð: 3-4 cm
Lágmarkspöntun: 18 stk
Einingarverð: 2.490 kr
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni)

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg