Pelmatojulus tigrinus L

5.490 kr.

SKU: ANIMM2402L Flokkur:

Risa þúsundfætlan (Pelmatojulus tigrinus) er forvitnilegt gæludýr. Hún er gulbrúnleit með ljósari þverröndum. Hún verður um 18 cm löng og kemur frá Fílabeinsströndinni í V-Afríku. Þetta er nokkur stór og fjörug þúsundfætla. Best er að hafa hana í loftræstu en lokuðu búri með moldarbotnlagi og mosa. Hún lifir á rotnandi laufblöðum, ávöxtum, grænmeti og fiskafóðri. Moldin þarf að vera rök og gott er að hafa grunna vatnsskál hjá henni. Búrið þarf ekki að vera stórt. Getur ekki klifrað upp gler. Þessari finnst gott að grafa sig ofan í botnlaginu. Allar þúsundfætlur seyta frá sér vökva sér til varnar. Vökvinn er eitraður en flestum skaðlaus. Þess vegna ætti að þvo hendur eftir að hafa meðhöndlað dýrin, áður en farið er með fingur í augu eða munn! Getur lifað í 7-10 ár. Þarf 70-80% loftraka og rakt botnlag en ekki blautt.

Tegund: Giant Millipede L
Stærð: 10-12 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 8 vikur (eftir framboði hverju sinni)

Umönnunarleiðbeiningar!

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg