Phyllium giganteum M

16.290 kr.

SKU: ANISI9978M Flokkur:

Risa laufdýrið (Phyllium giganteum) er stórmerkilegt gæludýr sem finnst í Malasíu. Þetta er ein stærsta laufskordýrategundin. Best er að hafa hana í loftræstu en lokuðu búri með moldarbotnlagi og mosa. Einungis kvendýr virðast finnast í náttúrunni og geta af sér fleiri kvendýr. Verður 10 cm langt. Svört eggin eru bara látin falla á botninn þar sem þau klekjast út á  6-9 mánuðum. Lifa eingöngu á laufblöðum ss. af rósaviði, klungrum (hindberjarunnum og brómberjarunum) og eikarblöð. Má gefa afhýdd epli við og við. Þarf nokkuð góðan raka og alltaf nóg hreint drykkjarvatn. Geta slegist innbyrðis. Venjast fljótt að haldið sé á þeim. Mega ekki vera í búri með förustöfum í búri en þeir geta lagst á laufdýrin ef matarhallæri skapast.

Tegund: Giant Malaysian Leaf Insect M
Stærð: 4-5 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 8 vikur (eftir framboði hverju sinni)

Phyllium giganteum FEMALE | Giganteum, Reptiles pet, Leaves

Umönnunarleiðbeiningar.

 

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg