56.690 kr.

SKU: 39937 Flokkur:

Rauðmaga píranan (Pygocentrus nattereri) er öflugur ránfiskur af tetruætt. Hann kann best við sig í torfu en hafa ber í huga að það er afar erfitt að bæta fiski í torfuna seinna. Þetta er grimmur ránfiskur sem fer létt með að tæta í sundur allt sem að kjafti kemur. Tennurnar eru eins og rakvélarblöð (sjá mynd) og fullorðinn fiskur getur hæglega tekið putta af manni. Hann þarf kjötmeti eða fiska sem fóður og vex allt að því 1 cm á mánuði fyrsta æviárið. Hann hrygnir í gróðurþykkni eða "hreiðri" sem hængurinn býr til, og gætir hrognanna. Þarf stórt, súrefnisríkt búr. Verður allt að 25 cm langur.

Tegund: Red-bellied Piranha XXL
Stærð: 20 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni)

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg