13.260 kr.

Tapajós rauðhöfða moldarinn (Geophagus pyrocephalus) er falleg siklíða í sérbúri. Henni lyndir fremur illa við aðra af sömu tegund, sérstaklega á hrygningartímanum þegar hún vill helga sér svæði og verja. Þetta er gullfalleg siklíða þegar hún er orðin kynþroska (um 18-24 mánaða) og hængurinn fær langa ugga. Þessi fiskur rótar mjög eftir æti í botnlaginu. Hann verður um 25-28 cm langur. Þetta er vinsæl siklíða en það þarf natni til að halda henni. Ræktaðir!
Tegund: Red Head Tapajós Eartheater M/L - Bred.
Stærð: 7-9 cm
Lágmarkspöntun: 2 stk
Einingarverð: 13.260 kr
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni)

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg