44.260 kr.

SKU: 668824 Flokkur:

Warzeli tafldvergsiklíðan (Dicrossus warzeli) er afar sjaldgæf og dýr dvergsiklíða frá Rio Tapajós vatnasvæðinu í Brasilíu. Henni lyndir nokkuð vel við aðra rólega fiska nema á hrygningartímanum þegar hún vill helga sér svæði og verja. Hún er falleg og tignarleg og dafnar best í góðu gróðurbúri. Hún er best í pari eða hængur með nokkrum hrygnum. Hrygnan verður 3-4 cm en hængurinn allt að 7 cm. Hængurinn fær spaðalaga sporð með aldrinum. Vilja mjög súrt vatn til hrygningar. Ræktaðir!
Tegund: Warzeli Checkerboard Cichlid M - Bred.
Stærð: 4-5 cm
Lágmarkspöntun: 7 stk
Einingarverð: 44.260 kr
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni)

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg