Xingu I Pike M (min. 7 pcs)
Xingu I grenisiklíðan (Lugubria sp. Xingu I) er mjög straumlínulöguð siklíðutegund af Rio Xingu vatnasvæðinu í Brasilíu. Hængurinn verður 35-40 cm en hrygnan minni. Siklíðan er harðgerð og auðveld og er eftirsótt vegna appelsínugula litarins í æsku og hegðunarinnar. Gengur með stórum tetrum og siklíðum en ekki minni fiskum sem hún getur gleypt, enda munnstór. Á það til að róta töluvert í botnlaginu þ.a. gróður þarf að vera vel festur. Búrið þarf að vera vel lokað. Hrygnan gætir hrognanna. Hægt að hafa marga saman í búri.
Tegund: Xingu I Pike Cichlid M
Stærð: 6-8 cm
Lágmarkspöntun: 7 stk
Einingarverð: 19.410 kr
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni)
Aðrar upplýsingar
| Þyngd | 0.00 kg |
|---|

















