27.180 kr.

Cyclos grenisiklíðan (Crenicichla cyclostoma) er straumlínulöguð siklíðutegund. Hængurinn verður um 10 cm langur en hrygnan minni. Ein sú minnsta í sinni ætt. Hún er rólegri en margar grenisiklur en getur orðið skapstór við hrygningu. Hún er harðgerð og auðveld og er eftirsótt vegna útlits og æðis. Gengur með miðlungsstórum tetrum en ekki minni fiskum sem hún getur gleypt, enda munnstór. Á það til að róta töluvert í botnlaginu þ.a. gróður þarf að vera vel festur. Búrið þarf að vera vel lokað. Hrygnan gætir hrognanna. Hægt að hafa marga saman í búri. Finnst á vatnasvæði Tocantins í Brasilíu.
Tegund: Cyclos / Cyclostoma Pike Cichlid L
Stærð: 8-10 cm
Lágmarkspöntun: 2 stk
Einingarverð: 27.180 kr
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni)

Belly Crawler Pike | MonsterFishKeepers.com

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg