12.890 kr.

SKU: 31881 Flokkur:

Skrautbikírinn (Polypterus ornatipinnis) er állaga fiskur frá V-Afríku. Þetta er bæði einfari og hópfiskur sem liðast um búrbotninn í ætisleit. Hann hentar eingöngu með stærri fiskum en þó ekki grimmum. Hann er almennt rólegur en stærðar síns vegna getur hann ekki verið með fiskum sem hann getur gleypt - og hann er býsna munnstór. Hann er afar snar í snúningum og eigandinn þarf því að gæta þess að hafa búrið vel lokað. Nærist á möðkum, kjötmeti og smáfiskum. Verður allt að 60 cm langur. Gæta þarf þess að hafa vatnið í búrinu nægilega grunnt til að fiskurinn geti komið upp á yfirborðið til að anda.
Tegund: Ornate Bichir S
Stærð: 9 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni)

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg